15.7.2008 | 19:54
hér er ég hvar ert þú,,,?
Jæja ef miðað er við kvittanir er þrír að lesa þetta já eða fjórir, svo hæ Mamma, Gummi, Stína, og Einnar.
Hvolpar er enn fjórir og er ég að verða nokkuð bjartsýnn á þá stuttu, enda orðin 132gr og hin 450gr.
Sá græni er seldur og ekki fór hann á slæman stað, kaupandinn er Unnþór Vélstjóri og vona ég að bíllinn verði honum eins góður og mér. Mundu bara að þetta er bíll með sál, hann vill láta klappa sér og í staðin fer hann alltaf í gang.
Já Gummi þessi mynd var tekin í vetur,,,,,
Það eru að koma gestir að sunnan og viti menn það er víst ekki svo langt.
En til að koma sem flestum fyrir og sem næst okkur er ég búinn að setja upp gestahús.
það eru orðin tvö hjól á númerum á þessu heimili, enda er hann Andri Már í umferðaskólanum að mennta sig í skiltum og umferðareglum.
Aðrir eru í svaka stuði og hressir umfram meðallag, það er þó farið að styttast í þessu fríi og vinna framundan.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
6.7.2008 | 18:49
sumar aftur....
Sæl öll, sú stutta er enn á lífi og nokkuð spræk þó hún hafi ekki verið að þyngjast sem skildi.
Sú stutta er orðin 94gr á móti 290gr sem systkini hennar eru orðin, þar má sjá að hún er ekki að stækka eins og maður vildi.
Það er komið sumar á Akureyri aftur og er því vel fagnað af öllum, einkum þó krökkunum í hverfinu sem þyrpast út í leiki.
Svo er það hún Íris mín sem er ný komin úr aðgerð, hún var sett í klössun og er nú haltrandi um húsið.
Anna María er að fara á annan leikskóla og skruppum við að prófa búnaðinn í dag, það er skemmst frá því að segja að þar virkar alt sem á að virka.
Garðurinn er að verða smá skrítinn, hel að það vanti hest í garðinn eða kind.....?
Nýtt albúm júl-ág-sept
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.6.2008 | 22:15
hvolpar,,,
Já það er stuð hjá okkur, enn eru þrír hvolpar tvær stelpur og einn strákur.
Hún er með okkur og virðist ætla að hafa þetta af, það er samt ekki orðið full víst og verður það ekki strax.
Stelpu greið er 58gr enn systir hennar er 132gr, strákurinn er 130gr.
Þannig að kannski skilur fólk hvað maður er að velta fyrir sér með þyngdina, hún er jú ekkert smá minni en hin.
það er nóg að gera hjá Írisi minni, hún vaknar með jöfnu bili á nóttunni og setur krílið á spena hjá Emblu og gefur henni smá með sprautu.
Þetta verður vonandi nóg til að hjálpa þessari písl að stækka og verða sjálfbjarga.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
26.6.2008 | 10:02
kominn.......
Sæl öllsömul, þá er ég kominn af sjónum og fer als ekki að slappa af.
Þar sem að ég bað hana Emblu að gjóta ekki fyrr en ég væri kominn gerði hún það og skilaði hvolpum á heimkomudeigi, það komu fjórir en einn dó fyrir fæðingu.
Semsagt þrír hvolpar, frekar er ein stelpan nú samt lítil og er ég smá hræddur um hana.
Jæja þá er mál að hvíla sig smá ( íris búin að vaka í alla nótt yfir hvolpum og hefur ekki orku í að setja mig í verkefni hehe).
Þannig að ég mun setja fleiri myndir inn fljótlega, og svo er kaffi á könnunni ef þið eruð á leiðinni norður í sólina.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
6.6.2008 | 23:25
Verkefnalistar
Verkefnalistar.
Það fer að verða nauðsinlegt fyrir hvern háseta að bátsmaðurinn sendi miða heim,
Á þessum miða getur til dæmis staðið.
Kæra frú maðurinn þinn var duglegur í þessum túr, vertu nú svo góð að leifa honum að slaka smávegins á í þessu stutta stoppi.
Þannig má kannski koma í veg fyrir þennan lista hér.
1. stæka pallinn fyrir framan húsið.
2. klippa runnana bakvið hús.
3. þvo og bóna bílinn.
4. henda gamla sjónvarpinu sem er um 100 kg.
5. koma fyrir 32 flatskjá og tengja.
6. vera til friðs og ekki nöldra.
Svo að sjá má að þetta er ekki svo galið með miða frá bátsmanni væri kannski nóg að hafa nr. 2. og 3. ha eða hvað, nr.6 er vonlaust.
Það skal tekið fram að Andri Már stóð sig með stakri prýði
Og hjálpaði öldruðum föður að klára verkið.
Já og hún Thelma er búin að kaupa sér hljómborð, safnaði sér sjálf fyrir þessu og er byrjuð að spila veiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiii.
sjáumst..
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
31.5.2008 | 20:46
Sjómannadagurinn
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.5.2008 | 19:08
nóg að gera
Nóg hefur verið að gera hér á Akureyri, Fimleikar, hjólaferðir, og sumarstörf,
Svakalega fínt maður.
Nú þarf ég að skreppa smá í vinnu, meira síðar.
Bloggar | Breytt 19.5.2008 kl. 18:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.5.2008 | 20:33
halllló
Sælt veri fólkið, jæja þá er ég kominn heim frá herra og frú GUINNESS.
Þau voru ekki heima svo að ég drakk bara bjórinn og borðaði matinn þeirra,svo var farið að versla og versla og versla og versla og var ég búinn að segja versla ?.já hún Íris mín kann sko að versla það er alveg víst. En snjalli ég já eða hún, snögglega var mér breitt í pallbíl já eða dráttartæki fyrir kerru.
Nú þrátt fyrir hátt bensín verð þarf að setja vökva á kalla sem draga þungar töskur.
Jú og svo þarf að athuga hvort að herbergið er ekki í lagi.
Jæja meira á morgun.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
18.4.2008 | 16:36
Svakalega latur
Letin er að drepa mig, eða minnsta kosti gera mig hreyfihamlaðan.
Þetta gerir það að verkum að ég er ekki að skrifa neitt hér og örugglega ekki að smíða skápa í þvottahúsið, sem aftur gefur mér góðan tíma til að gera ekki neitt og jú éta.
Það hef ég löngum sagt að kosturinn við að vera of þungur sé sá að ekki þarf að hafa áhyggjur af því að verða það, hentug ekki satt hehehehe.
Fimmleikar eru ekki fjölskildu sport hjá okkur en Thelma Björk var að keppa og varð númer þrjú í samanlögðu, Hvað svosem það þíðir í fimmleikamáli.
Anna María var að fara í lek skólann þar sem þema dagsins var kúrekar já kúrekar
Og Andri er að máta og máta og ............
ég er svo í leti og Íris að vinna hehehe
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.4.2008 | 20:42
Neró Embluson
þetta er hann Neró Embluson
Fallegur og flottur, enda ekki von á öðru.
svona var hann þegar hann var hvolpur,hefði verið gaman að sjá hana í dag.
en það fór eins og það fór og við vonum að betur gangi næst.
Annars ekki mikið um að vera hér allir í stuði og erum að fara að sækja hjólið.
Jú erum að kaupa annað hjól, Andri er orðinn 15 ára og má í júlí fá æfingaleyfi á 50 cc
bææææææææ
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
3.4.2008 | 16:26
Þessu missti ég af í síðasta túr.
Það er alltaf eitthvað sem maður fer á mis við þegar maður er á sjó,
Í síðustu ferð hjá mér átti Thelma Björk 11 ára afmæli og það var farið í Víkurskarð á sleða og skíði, borðað nesti og gerður góður dagur.
Nítt albúm til að skoða.
Munið að kvitta.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
3.4.2008 | 11:04
Sumarið er að koma
sem við hjónin eigum til nota á sumrin. Þetta er Kawazaki Vulcan 1500 árgerð 1999.
Þessi mynd var tekin á sýningu hjá mótorhjóla klúbbnum Tíuni
Sem er klúbbur stofnaður á Akureyri, Við hjónin erum líka í Sniglunum.
Gamla hjólið okkar var Suzuki GSX 100 R. Árgerð 1987.En vinur okkar Jón Þór gerði það upp frá a-ö
Hjólið leit út eins og nýtt og virkaði vel, en hentaði ekki fyrir þau not sem við ætlum okkur með þessu sporti.
Það hefur lengi verið sagt að ég sé tækja sjúkur og virðist það erfast til barnanna minna.Hér er Anna María að skoða sér ökutæki sem henni leist vel á.
Hér má sjá Andra máta 50 cc
Og Thelma á 50 cc
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
25.3.2008 | 19:39
11 ÁRA
Jæja í dag er hún Thelma 11 ára, og vil ég óska stóru stelpunni minni hjartanlega til hamingju með daginn. Vona að þú eigir góðan afmælisdag elsku Thelma mín, vertu dugleg að skrifa mér póst á sjóinn. Nú svo eru Andri og Thelma að hjálpa Mömmu sinni að passa Önnu Maríu á meðan hún er að vinna, duglegir krakkar enda ekki annað hægt þar sem ég er á sjó.
Hef ekki enn fundið aðferð til að setja myndir inn svo texti verður að duga, er samt að reyna svo að það er tilraun hér með.
Kveðja. SMM
20.3.2008 | 21:33
æ
Jæja ég röfla þá bara þar til að ég fæ myndirnar til að birtast,
Það er helst að frétta að Andri og bekkurinn hans eru að safna fyrir Danmerkurferð.
Og að Thelma er á fullu í fimmleikum, Anna María á leikskólanum, Íris Björk í vinunni og ég á sjónum. Annars er mér sannur heiður að tilkinna ykkur að hún Íris mín er að verða gömul, já þessi elska verður 39 ára 16.o4.2008. elli er ekki farin að hrjá hana en ég er farinn að fylgjast vel með henni.svona bara til að vera viss.
Veðrið hér á sjónum er ekki spes 50 hnútar og fer upp í 70 hnúta í hviðum, það er gott að ekki þarf að losa alla þessa hnúta.
Enn bless í bili og vonandi komast myndirnar í lag
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar