31.5.2008 | 20:46
Sjómannadagurinn
Sjómannadagurinn. komum til Reykjavíkur föstudagskvöld til að halda sjómannadaginn hátíðlegan.Merkilegt hvað menn þurfa að leggja á sig til að fá að fara í smá frí, helst að vinna tveggja daga verk á aðeins hálfum deigi. Annars er þetta hið besta mál og gerir það að verkum að mér finnst ég vera eðlilegur (hehe ég eðlilegur ). En ekki myndi ég t.d. bjóða einhverjum í veislu sem ég vissi að kæmist ekki, vegna þess að ég sjálfur hefði sent hann annað ???? en jú okkur var boðið að vera við opnun safns um borð í Óðni, á sama tíma og við vorum í baujuvinnu rétt út af Hafnarfyrði (hehe sæælll). Þannig er þetta mjög oft í þessum bransa og verðum við að brosa og segja svakalega eru þessir menn vitlausir og við .... ekki svo já svona hehe .Annars er voða gaman í þessu bauju stríði og þetta er að bjarga okkar geðheilsu, sé einhverju að bjarga. Það verður gaman að koma heim eftir þennan túr og eiga bara einn eftir fyrir stopp.Konan kominn í stjórn Tíunnar og nú ekki sem varamaður heldur sem stjórnarmaður, hmmm hún maður ekki er það gott...... eða jú, já já Villi segir að maður eigi að vera jákvæður og hann má ráða núna. Sjáumst fljótlega bæbæ.
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.